Danmerkur ævintýri
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1134 dögum
Við komum heim til Íslands
Klukkan
Dagsetning
28. janúar 2012
Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 8855
03.12.2008 17:40:31 / annaogbaldur

Afmæli og fleira

Jæja ég fékk engar afmæliskveðjur á þetta blogg en þið hringduð nú flest eða senduð mér annars staðar skilaboð þannig að ég fyrirgef ykkur þetta ;)
Á sunnudaginn (afmælisdaginn) byrjaði ég daginn á því að búa til heitt súkkulaði og heit rúnstykki sem var alveg frábært... held ég hafi næstum náð að gera þetta jafnvel og mamma en það var ekkert rækjusalat :/ Síðan löbbuðum ég og Baldur niður í bæ (sem er ekkert lítið labb) og skoðuðum jólaljósin og jólastemmninguna sem var rosa gaman. Þegar við komum heim bakaði ég afmælisköku og svo elduðum við Piparsteik og tilheyrandi... alveg rosa gott :) þannig að þetta var lítið annað gert en að borða góðan mat og hafa það huggulegt sem var alveg frábært.
Á laugardaginn næsta ætla ég að halda afmælisveislu hjá Eddu. Ég held það hjá Eddu því við ætlum að bjóða í mat og við höfum bara ekki pláss í okkar litlu íbúð til þess bjóða öllum heim... eigum bara 3 diska sem er ekki nóg í matarboð :) Við erum að hugsa um að hafa kalkúnabringur, brúnaðar karteflur, grænar baunir, sósu og heila pakkann... nammm
En annars er bara brjálað að gera í skólanum, klára öll verkefni og svona þannig að næsta vika verður alveg crazyness in the brainhouse en það verður svo gott að klára þetta :)
Á sunnudaginn er jólaföndur með Erasmus-nemendunum, svo er ég að fara á morgun í heimsókn í einhvern skóla og í jólaveislu með enskutíma hópnum og ég þarf að baka súkkulaðiköku núna til þess að taka með á morgun. úff alltof mikið að gera!!!
En svo er Hulda að koma til Danmerkur rétt áður en við förum heim því hún er að fara að bera vitni útaf því að hún varð vitni að líkamsáras í sumar... sem er mjög gott fyrir mig og hana.... hún getur hjálpað okkur að flytja dótið heim og hún fær fría utanlandsferð... ekki slæmt :)
Jæja ég ætla að fara að baka heyrumst


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.11.2008 21:58:12 / annaogbaldur

Snjór, jól og hygge

Það snjóaði seinustu helgi.... ohhhh hvað það var gaman. Ég og Baldur fórum út að leika í snjónum og tókum fullt af myndum (set inn myndir á næstunni).
Það er búið að vera svo mikið að gera í verkefna vinnu seinustu daga þannig að ég hef ekki haft tíma til að skrifa en núna er ég að skrifa ;)
Það styttist svo í jólin, það eru nú ekki komin upp jólaseríur en það er byrjað að skreyta göturnar og auðvitað búðirnar, svo þarf maður að kíkja á jólamarkað í desember :) Það verður alveg geggjað að koma beint heim í jólin :) Eins og þið takið kannski eftir er ég búin að setja jólaþema á síðuna og niðurtalningu fyrir ykkur :)
Svo styttist nátturlega í afmælið mitt :p Það verður svolítið skrítið að fara ekki í morgunmat til mömmu í heitt súkkulaði og rúnstykki en ég verð bara að gera það næst besta og gera það sjálf :) Annars er ég ekki búin að plana neitt sérstakt að gera en það verður örugglega eitthvað alveg frábært :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.11.2008 21:34:07 / annaogbaldur

Svíþjóð og Farum

Ég fór til Svíþjóðar á sunnudaginn til þess að heimsækja Ingu vinkonu, hún var í heimsókn hjá Jónu systir sinni með Dagnýju systir sinni. Og þar sem Inga var svona stutt frá varð ég að kíkja yfir. Ohhh hvað það var gott að hitta hana :) Við skemmtum okkur stórkostlega :) Við gerðum nú ekkert merkilegt að segja frá... spiluðum og spjölluðum en það var alveg frábært.

Í dag fór ég til Farum sem er hálftíma í lest frá Kaupmannahöfn... rétt hjá Helsingör ef þið vitið hvar það er. Kennarinn minn er sadisti... hún lét okkur labba í fjóra klukkutíma stanslaust og við fengum ekki einu sinni smá stopp til þess að borða. Og ég er ekki að tala um einhverja skemmtigöngu því við löbbuðum mjög hratt 8| Síðan var rigning og rok og einu skórnir sem ég gat farið í voru converse skór sem eru úr tau-efni og þeir urðu svo blautir og brúnir af drullu þannig að mér var líka kalt..... sem sagt ekkert alltof góður dagur en krakkarnir sem voru með voru fínir þannig að það gerði þetta aðeins betra :)
Svo þurfti ég náttúrlega að hjóla í skólann og til baka sem eru 40 mín. Þannig að núna er ég að drepast í löppunum og algjörlega búin á því, úfff.

okey nú er ég búin að láta vorkenna mér :) Annars höfum við það fínt hérna úti, hlökkum til að koma heim, það styttist í þetta, ekki nema mánuður eftir... þetta er rosalega fljótt að líða.


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.11.2008 17:09:14 / annaogbaldur

J-dag og danska þingið

Á föstudaginn var J-dag sem er sá dagur þar sem fyrsti jólabjórinn kemur í búðir og af því tilefni koma sendibílar inn á alla bari í bænum og gefa jólabjór, húfur og buxur. Barirnir gefa einnig bjór í hálftíma.... sem þýðir að það eru allir í bænum og þetta er sá dagur sem næst flestir lenda á slysó... á eftir gamlárskvöldi :$ Ég var í norskum kvöldmat á föstudeginum þannig að ég missti af fría jólabjórnum en ég fór þangað seinna um kvöldið og það var sko gjörsamlega pakkað út að dyrum á öllum stöðum þannig að við Baldur vorum nú ekki lengi þar.
En í norska matnum fengum við rosalega góðan forrétt sem var lufsur með rjómaost, lax og púrrulauk inní og salat til hliðar... mjög gott :) Í aðalrétt var nautakjöt, sveppir og laukur ofan í sósu... nokkurs konar kássa og saltflögur (snakk) með... skildi það ekki alveg... en allavega þá var það allt í lagi... ég segi ekki meira :) og í eftirrétt var ís með m og m súkkulaði sem var mjög gott :)
Í gær (sunnudag) fór ég í danska þingið með skólanum og fengum þar ferð um þingið og lærðum ýmislegt... falleg bygging og risa stór (ég set inn nokkrar myndir af því svo þið getið séð það)
Annars er alveg brjálað að gera í skólanum, endalaus verkefni... er að fara til Eddu á eftir og þá ætlum við að reyna að klára eitt verkefni sem er ógeðslega stórt, og það verður alveg geggjað ef við náum að klára það :)
Seinustu daga er búið að vera rosalega mikil rigning... og það er einhvern veginn eins og hún komi alltaf þegar maður þarf að fara eitthvað t.d. í skólann :s Í morgun þegar ég var á leiðinni í skólann (á hjóli) kom svo rosalega mikil rigning, RISA, RISA, RISA stórir dropar og vindur með... það var alveg glatað og ég kom rennandi blaut í skólann og þurfti að vera í skólanum í blautum fötum í nokkra klukkutíma... ekki gaman :/ úffff



» 2 hafa sagt sína skoðun

04.11.2008 09:13:38 / annaogbaldur

Vikan

Eg er i tolvunni i skolanum og tad eru engir islenskir stafir... tid verdid bara ad sætta ykkur vid tad :)
A fimmtudaginn var spænski kvoldverdurinn og maturinn var alveg frabær. Marisa spænska stelpan var med tapas retti og eg set inn myndir i dag af honum... nenni nefnilega ekki ad fara ad telja tad allt upp en eg lysi rettunum med myndunum :) Reyndar var eftirretturinn vidbjodur... Tad var flan... veit ekki hvort tid vitid hvad tad er en mer fannst tetta smakkast eins og tusund eggjahvitur med karmellusosu.... ekki gott.... trust me... og eg var ekki su eina sem fannst tetta vont.... Birgitta tu hefur nu orugglega smakkad svona tegar tu varst a Spani?!?!

Vid forum ekki a Halloween kvoldid tannig ad tad er ekkert hægt ad segja fra tvi. En takk fyrir hugmyndirnar Birgitta og Hulda :) A laugardaginn for eg i party til frænku Eddu (Tora) og Baldur for til Jenna vinar sins... tad var svaka fjor :)

Baldur er nuna ad fara ad skipta um dekk a hjolinu tvi tad sprakk a dekkinu og tad er ekki gaman :/

A fostudaginn næsta er norskur kvoldmatur.... tad er ekki fridur fyrir tessum skiptinemum.... alltaf eitthvad ad gerast :) I kvold er surprise party fyrir tvær tyrknesku stelpurnar tvi tær eiga afmæli... en eg nenni algjorlega ekki ad mæta... tad ma ekki ofgera hlutunum.
En a fostudaginn kemur lika jola-bjor-lestin sem er eins og coca cola lestin heima nema tusund sinnnum flottari... Miklu fleiri skreyttir sendibilar og svo stoppa teir ut um allt og gefa vegfarendum jolabjor svo eru barirnir med i tessu og eru lika ad gefa bjor... i halftima... en samt... tad eru alveg tveir bjorar eda svo :)

Svo fer nu ad styttast i ad Inga komi i heimsokn sem verdur alveg geggjad :) Inga eg hlakka geggjad til ad hitta tig :haha: og svo vitid tid hin ad tid erud velkomin til okkar hvenær sem er og erud velkomin ad gista hja okkur... ef tid komist t.e.a.s. upp a sjottu hæd ;) nei bara djok hehehe

bless i bili


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.10.2008 21:35:03 / annaogbaldur

ummmm

Maturinn sem við héldum á föstudaginn seinasta gekk rosalega vel.... maturinn var alveg geggjaður og krökkunum fannst þetta bara mjög gott :) Svo á morgun þá er spænskur kvöldverður... held það verði einhvers konar tapas-réttir.... hlakka mikið til þess... örugglega mjög góður matur :) Annars er nú ekkert annað mikilvægt búið að gerast í vikunni.
Á föstudaginn er halloween-þema á íslenska barnum þar sem allir eiga að vera í búningum. Við erum ekki alveg búin að ákveða hvort við eigum að fara en ef þið komið með góðar hugmyndir að búningi sem má ekki kosta mikinn pening þá förum við pottþétt þannig að endilega komið með hugmyndir ;)
Hlökkum til að heyra frá ykkur
kv. Anna og Baldur


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.10.2008 16:47:54 / annaogbaldur

Ljótu peysu kvöld

Heyrðu vá ég var búin að gleyma að ég væri með heimasíðu hehe

allavega þá hefur ekkert merkilegt gerst þessa viku nema það að ég hef verið í vettvangsnámi sem er að klárast á morgun og ég og Edda ætlum að baka möffins fyrir krakkana... það verður gott að klára vettvangsnámið :)

Á fimmtudaginn fyrir viku var ljótu peysu keppni á íslenska barnum hérna og auðvitað tókum við Baldur þátt í því... við vorum í alveg hræðilegum peysum og ég er að fara að setja inn myndir af okkur í klæðnaðnum :) Við komum hins vegar svo seint að keppnin var búin þannig að við náðum ekki að taka þátt en það skiptir engu... bara gaman að vera með :)

Á morgun erum við íslensku stelpurnar í skólanum að fara að halda íslenskan kvöldverð fyrir hina skiptinemana og hóstana og það sem við ætlum að bjóða upp á er:
í forrétt: graflax á ristabrauði og graflaxsósu
í aðalrétt: hangikjöt, uppstúf, karfteflur og grænar baunir (fengum ekki laufabrauð)
í eftirrétt: heimalagaðann toblerone ís með mars-sósu... nammmmmm

þannig að í kvöld er ég að fara að hitta Eddu og búa til muffins, toblerone-ísinn og sjóða hangikjötið en áður en ég geri það þarf ég auðvitað að búa til kvöldmat með Baldri pestókjúkling þannig að ég verð bara í eldhúsinu í kvöld.... úfff nei nei það verður bara gaman.... veit að ég og Edda eigum eftir að skemmta okkur konunglega við þetta :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 14:02:02 / annaogbaldur

Menningarhátíð, Tívolí og margt fleira

Nú er aftur búið að vera svo mikið að gera að maður hefur ekki haft neinn tíma til þess að blogga. 
Á föstudaginn byrjaði ég í haustfríi og er í haustfríi fram á næsta mánudag sem sagt eftir viku :) Geggjað gott ;) og á föstudaginn var menningarnótt eða kulturnat... það voru svo margir í bænum að ég held að ég hafi aldrei séð svona mikið af fólki á sama stað og það voru engin drykkjulæti eða slagsmál... bara spilað tónlist, opið í öllum búðum til miðnættis og fólk að skoða stemmninguna. Mamma og pabbi Baldurs komu akkúrat til Kaupmannahafnar á föstudeginum þannig að við fórum með þeim út að borða á Fiat sem er ítalskur veitingastaður... mjög góður matur og góð þjónusta :)
Á laugardeginum fórum við öll saman í tívolí og þar var Halloween þema með alveg örugglega nokkur þúsund graskerum :) Mjög flott við skemmtum okkur öll konunglega og ég fór í eitt tæki... það ógeðslegasta auðvitað en það vildi enginn koma með mér í tækin því þau eru svo hrædd við þetta :$ Svo borðuðum við á Hereford og fórum aftur í smá stund í tívolíið þar sem mamma og pabbi Baldurs gáfu okkur mynd af okkur sem var skorin inn í gler með einhverjum laser... þið sjáið það bara þegar við komum heim... allavega mjög flott.
Síðan borðuðum við fullt af fleiri stöðum sem ég man ekki hvað þeir heita allir en við erum sem sagt búin að borða alveg heilan helling þessa helgi :) Núna held ég að það verði svolítið í það að maður borði á veitingastað aftur hehe

p.s. Áslaug það hljómar ekkert smá vel að fara í mörkina um helgina og ég vona að þið skemmtið ykkur rosalega vel :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.10.2008 19:57:51 / annaogbaldur

Veikindi á Skodsborggade

Já núna erum við Baldur orðin veik.... ekki gaman. En við ætlum að losna við þetta fyrir helgi því þá byrja ég í haustfríi í 10 daga og um helgina koma foreldrar Baldurs og við ætlum að kíkja í Tívolíið á laugardaginn því það opnar aftur um helgina með Halloween þema þannig að þá er alveg bannað að vera veikur.

Eruð þið með einhverjar frábærar hugmyndir um hvað við getum gert skemmtilegt í haustfríinu? Það væri náttúrlega alveg geggjað að koma í heimsókn til Íslands en það er of dýrt þannig að það er ekki í boði.... Endilega komið með einhverjar tillögur :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.10.2008 23:27:58 / annaogbaldur

Tyrkneskur matur og heimsóknir

hæ elskurnar mínar
Sorry hvað það er langt síðan ég skrifaði seinast en það er bara búið að vera alveg crazy að gera.
Á fimmtudaginn komu Villi og Höddi vinir Baldurs og gistu hjá okkur, þeir fóru aftur heim til Íslands núna í kvöld þannig að við höfum haft nóg að snúast en samt bara gaman :) mamma Baldurs millilenti hér á laugardaginn þannig að við hittum hana niðri í bæ og fórum öll saman að borða á veitingastaðnum Italiano... rosa góðar pizzur þar :)
Á fimmtudags kvöldið fór ég í mat í skólanum þar sem 3 tyrkneskir skiptinemar elduðu fyrir okkur tyrkneskan mat. Í forrét var súpa sem tók 5 daga að búa til (ég er ekki að ljúga) venjulega tekur það 15 daga en þau voru ekki búin að ákveða þetta með svo löngum fyrirvara (þau þurrka kryddjurtir á einhvern sérstakan hátt og eitthvað... var ekki alveg að skilja) en súpan var ekki góð að mínu mati 8| Síðan kom aðalrétturinn og það var kjúklingur í jógúrti, hvítlauk og eitthvað grænt ofan á og svo meðlætið var salat og laufblöð með hrísgrjónum og sterku kryddi inn í (ég set inn myndir bráðum þá skiljið þið hvað ég á við) mjög sérstakt og Anna matvanda kúgaðist þegar hún smakkaði kjúklinginn en náði að borða nokkur laufblöð hehe síðan var reyndar mjög góð muffins í eftirrétt sem ég borðaði með bestu lyst (enda eina sem ég gat borðað :lol: )
Annars er alveg brjálað að gera í skólanum... samt bara í fjarnáminu sem ég er í á Íslandi. Ég er í vettvangsnámi í einkaskóla hérna úti núna og verð út þennan mánuð, það er bara mjög gaman... krakkarnir eru þúsund sinnum stilltari en á Íslandinu góða. Ég er með 7,8 og 9. bekk. Við vorum að fylgjast með í seinustu viku en í þessari viku eigum við að kynna Ísland fyrir bekkjunum og fara yfir einhverja þýðingu hjá krökkunum... það er nú ekki flóknara en það
jæja bless í bili


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.09.2008 19:45:24 / annaogbaldur

Sól og blíða

Mamma og pabbi Baldurs komu til Danmerkur um helgina... reyndar bæði útaf vinnu en við hittum Sigrúnu á laugardagskvöldið og fórum út að borða með henni á Peder Oxe. Það var mjög huggulegt og góður matur nema hvað við fengum öll í magann :| Svo fórum við á kaffihús eftir það og ég fékk mér risastórt heitt súkkulaði sem var rosalega gott. Eftir það hittum við Magga og kíktum aðeins á hótelbarinn og spjölluðum :)
Í dag komu Sigrún og Maggi í heimsókn í íbúðina okkar... það var svolítið erfitt fyrir þau (og flesta) að fara upp á sjöttu hæð en ég held að þeim hafi bara litist vel á íbúðina :) Síðan kíktum við niður í bæ og fórum á kóngsins nýtorg og síðan á ítalskan veitingastað sem heitir Italiano, rosalega góðar pizzur þar mmmmmmm ;) Svo fórum við á kaffihús og upp á hótel til þeirra.... þannig að það var borðað mjög mikið og góðan mat þessa helgi :)
Það er búið að vera svo gott veður seinustu daga að þið getið rétt ímyndað ykkur það :lol:
Er ekki bara rigning og rok hjá ykkur??? hehe nei nei ég skal ekki nudda þessu of mikið í þig HULDA mín... og pabbi ég held að ykkur hinum sé nokkuð sama :)


» 9 hafa sagt sína skoðun

25.09.2008 20:43:42 / annaogbaldur

Snákar, mýs og áramótin

Strákurinn sem leigir okkur íbúðina á fjóra snáka og í kvöld bauð hann okkur yfir að sjá þegar hann gaf tveim snákum að borða lifandi mýs. Þetta var alveg rosalegt, fyrst gerðu snákarnir ekki neitt og biðu eftir að mýsnar myndu koma til þeirra og það virkaði... ég ákvað að skíra mýsnar og ég skírði þær Rip, Rap, Rup, Mína, Andrés og Guffi og hver haldið þið að hafi dáið fyrst.... auðvitað Rip (R.I.P.) ef þið vitið hvað ég á við (rest in peace) hehe en ég var nú pínu skelkuð á þessu öllu saman... í hvert skipti sem snákur réðist á mús stökk ég í burtu en kíkti svo alltaf aftur, maður er svo forvitin :)
Í skólanum í gær fór bekkurinn að tala um áramótin hjá sér og ég komst að nokkrum hefðum sem mér fannst mjög skemmtilegar. Danir hafa þá hefð að fara upp á stól rétt fyrir miðnætti og þegar kirkjuklukkan skellur á tólf á miðnætti (um áramótin) þá stökkva þeir niður af stólunum inn í nýtt ár. Spánverjar gera þetta víst aðeins öðruvísi, 12 sekúndum áður en klukkan verður tólf setja þeir eitt vínber á sekúndu upp í sig og svo þegar klukkan slær tólf þá eru þeir með troðfullan munninn af tólf vínberum upp í sig.... veit ekki alveg afhverju þeir gera það en þeir gera það.
jæja nóg í bili
veriði bless
ekkert stress
og borðið kex
hehe


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.09.2008 16:33:49 / annaogbaldur

Tartalettur og lærdómur

Ég bjó til tartalettur á mánudaginn og þær voru svo góðar mmmmmm en þær voru samt ekki eins góðar og mamma býr til en þær voru nálægt því :)
Annars þarf ég að læra mikið núna, ég byrja í vettvangsnáminu í næstu viku og verð að kenna 8. og 9. bekk ensku þannig að það er spurning hvernig það á eftir að ganga... vona að þau séu ekki með jafnmikla unglingaveiki og krakkarnir heima hehe nei nei smá djók.. Það verður rosa gaman :)
Mamma og pabbi Baldurs koma næstu helgi sem er mjög gaman :) Við hlökkum til að hitta þau, en ég þarf víst eitthvað að læra um helgina en ég reyni að gera það áður en þau koma :)
Hvað er annars að frétta af ykkur heima?
p.s. Áslaug og Rúnar hvernig gengur með undirbúninginn á afmælisveislunni? Þetta verður örugglega alveg geggjuð veisla :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.09.2008 15:09:59 / annaogbaldur

Netsamband!!!

Jæja nú erum við loksins komin með gott netsamband þannig að nú getið hringt á Skype alveg á milljón og ég ætla að reyna að vera alltaf inn á því... allavega þegar ég er heima :)
Ég var að setja inn nokkrar myndir af föstudagskvöldinu og svo myndir af kyndlagöngu sem var fyrir utan húsið okkar... ég held að þetta hafi verið útaf skotárásunum sem voru í seinustu viku :s
Annars er nú ekki mikið að frétta í bili.
p.s. það er rigning núna 8| ekki gaman en það er nú samt peysuveður hehe


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.09.2008 19:23:55 / annaogbaldur

Hjólinu stolið!!!

Jæja þá kom að því... hjólinu mínu var stolið í gær fyrir utan heimilið mitt... EKKI GAMAN!!! Samt var hjólið vandlega læst með þykkum og góðum lás en það virðist ekki skipta máli, þeir eru bara með stærri klippur eða eitthvað... en ætli þetta sé ekki eitthvað sem flestir upplifa einhvern tímann í Kaupmannahöfn. Edda vinkona er svo góð að hún ætlar að lána mér hjól þangað til að ég fæ mér annað :) því hún á auka hjól og er svo góð stelpa :)
Í gær var GALLAFEST eða galakvöld í skólanum og Erasmus-stúdentarnir og dönsku krakkarnir borðuðum saman, Tina og Rune (Danmörku) elduðu fyrir okkur í skólanum. Í forrétt var graskerssúpa, í aðalrétt var innbakaðu lax með smjördegi utan um og í eftirrétt var eplabaka. Þetta var ágætis matur og vel danskur en mér líkar nú betur við íslenska matinn verð ég að segja. Síðan eftir matinn fórum við niður í veisluna og dönsuðum við tónlistina ;)
Baldur fór til Kidda í afmælisveislu á meðan ég var á galakvöldinu. Þar var líka rosalega gaman ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 8855